Melt · Break the ice

Stefnumót eiga að vera mannlegri.

Melt varð til út frá einfaldri hugmynd: stefnumótaapp getur verið bæði skemmtilegt og ábyrgt. Það á að auðvelda fyrstu kynni án þess að fela mikilvægar upplýsingar eða gera samskipti að leik.

Raunverulegt fólk

Skyldustaðfesting með Kenni og 18 ára aldurstakmark draga úr fölskum prófílum. Notendur geta svo valið selfie-staðfestingu til viðbótar.

Betri byrjun

Ísbrjóta-spurningar, áhugamál og læk á einstök svör gefa samtalinu eðlilegan upphafspunkt.

Gagnsæi fyrir alla

Aldur og námunduð fjarlægð eru alltaf sýnileg. Melt+ breytir ekki þeirri grunnreglu og býður ekki upp á falska staðsetningu.

Byggt á Íslandi. Hannað fyrir alvöru tengingar.

Melt 1.0 verður með íslensku notendaviðmóti fyrir iPhone og Android. Þessi upplýsingavefur er einnig tiltækur á ensku.