Staðfestur aldur
Allir notendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og staðfesta auðkenni sitt rafrænt. Valfrjáls selfie-staðfesting getur bætt merki við prófílinn.
Tækni getur stutt við öryggi en kemur ekki í stað góðrar dómgreindar. Melt sameinar staðfestingu, stjórntæki og mannlega yfirferð til að hjálpa þér að eiga öruggari samskipti.
Allir notendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og staðfesta auðkenni sitt rafrænt. Valfrjáls selfie-staðfesting getur bætt merki við prófílinn.
Aðeins námunduð fjarlægð birtist. Nákvæm staðsetning, kort og hreyfisaga eru ekki sýnileg öðrum notendum.
Lokaðu á notanda, slítu matchi eða tilkynntu prófíl og skilaboð án þess að þurfa að útskýra ákvörðunina fyrir hinum aðilanum.
Áreitni, hatur, svik, eftirherma, óumbeðið kynferðislegt efni og viðskiptaleg misnotkun eiga ekki heima á Melt.
Hittist fyrst á opinberum stað og sjáðu sjálf/ur um ferðina þína.
Segðu vini eða fjölskyldumeðlim hvar þú verður og með hverjum.
Ekki senda peninga eða deila banka-, auðkennis- eða lykilorðaupplýsingum.
Treystu innsæinu. Farðu ef þér líður ekki vel, jafnvel þótt þú getir ekki útskýrt hvers vegna.
Hringdu í 112 ef þú eða annar aðili er í bráðri hættu.
Tilkynntur notandi fær ekki upplýsingar um hver sendi tilkynninguna. Öryggisteymi getur skoðað prófíl, lýsingu máls og þau tilteknu skilaboð sem eru send með tilkynningu. Stjórnendur geta ekki flett almennum spjallsögum. Niðurstaða getur verið viðvörun, takmörkun eða lokun aðgangs.
SamfélagsreglurSendu öryggisteyminu lýsingu á málinu. Í bráðri hættu skaltu alltaf hafa samband við 112 fyrst.
oryggi@meltapp.is