Aðgangur og gögn

Þú ræður hvenær þú ferð.

Þegar appið opnar geturðu eytt aðganginum beint í stillingum. Þar til þá, eða ef þú kemst ekki inn, geturðu sent staðfesta beiðni til þjónustu.

1

Opnaðu stillingar

Farðu í Prófíll → Stillingar → Aðgangur og gögn.

2

Veldu „Eyða aðgangi“

Lestu upplýsingarnar, veldu ástæðu ef þú vilt og staðfestu beiðnina.

3

Staðfestu auðkenni

Við gætum beðið um endurinnskráningu eða rafræna staðfestingu til að verja aðganginn.

Mikilvægt um áskrift

Eyðing Melt aðgangs segir ekki sjálfkrafa upp áskrift sem keypt var í App Store eða Google Play. Segðu áskriftinni fyrst upp í áskriftarstillingum viðkomandi verslunar til að stöðva næstu greiðslu.

Hvað gerist við gögnin?

Aðgangurinn er falinn og persónugreinanlegum prófílgögnum og myndum eytt þegar staðfest beiðni er afgreidd. Aðgangur að spjalli lokast strax og spjallþráðum er eytt eftir 90 daga. HMAC-auðkenni leitt af kennitölu getur verið varðveitt í allt að 24 mánuði til að hindra misnotkun og tvöfalda aðganga. Tiltekin öryggis-, viðskipta- og réttargögn geta varðveist lengur þegar lög eða réttarkröfur krefjast þess.