Íslenskt stefnumótaapp · 18+

Ekki bara match.
Brjóttu ísinn.

Melt hjálpar þér að finna fólk sem passar við þig og gefur þér betri leið til að hefja samtalið — með raunverulegum prófílum, skýrum ásetningi og öryggi í forgangi.

Staðfest með Kenni Aldrei nákvæm staðsetning Íslenskt viðmót í 1.0

Melt er í undirbúningi. Engin skráning eða greiðsla fer fram á þessum vef.

Tvær manneskjur kynnast á notalegu kaffihúsi
Ísinn er brotinn!Þið Eyrún pössuðuð saman
E

Hvaða staður á Íslandi kemur þér alltaf í gott skap?

Meira en bara mynd

Prófíll sem gefur þér eitthvað til að tala um.

Myndir skipta máli, en persónuleikinn gerir gæfumuninn. Melt sameinar skýrar upplýsingar, áhugamál og léttar ísbrjóta-spurningar.

Staðfest frá byrjun

Aðgangur er fyrir 18 ára og eldri. Eftir innskráningu með Firebase staðfestir Kenni aldur og auðkenni. Á prófílnum birtist aðeins fornafn og aldur.

Auðveldara fyrsta skref

Lækaðu prófíl, einstaka mynd eða svar og sendu stutta athugasemd sem getur orðið að fyrsta samtalinu.

Nálægð án nákvæmrar staðsetningar

Melt notar raunverulega staðsetningu til að sýna námundaða fjarlægð. Nákvæm hnit, kort og bakgrunnsvöktun sjást aldrei.

Frá fyrsta augnabliki að fyrsta spjalli

01

Búðu til prófíl

Veldu allt að sex myndir, þrjár ísbrjóta-spurningar og þau áhugamál sem lýsa þér best.

02

Finndu tengingu

Strjúktu til hægri þegar einhver vekur áhuga. Gagnkvæmt læk verður að matchi.

03

Brjótið ísinn

Spjallið opnast strax með skilaboðum, emoji, innsláttarstöðu og leskvittunum.

Öryggi

Öruggt rými til að kynnast.

Lokaðu á notanda, tilkynntu efni eða slítu matchi hvenær sem er. Melt er hannað með einföldum stjórntækjum og skýrum samfélagsreglum.

  • 18+ með rafrænni auðkenningu
  • Tilkynning, lokun og unmatch í örfáum skrefum
  • Aldur og námunduð fjarlægð alltaf sýnileg
Sjá öryggisverkfæri
Melt+

Meira svigrúm. Sama heiðarlega upplifun.

Fáðu ótakmörkuð læk, sjáðu hverjir hafa lækað þig, stjórnaðu sýnileika og leskvittunum og fáðu eitt 60 mínútna Boost í hverjum mánuði.

Sjá verð og Melt+
3 dagar ókeypis
Melt+
2.990 kr.

á mánuði

Ótakmörkuð læk60 min BoostSjáðu hverjir læka þig

Ný byrjun þarf bara eitt lítið skref.

Melt kemur á iPhone og Android. Fylgstu með — ísinn brotnar bráðlega.

Væntanlegt íApp Store Væntanlegt áGoogle Play