Spurt og svarað

Það sem gott er að vita áður en ísinn brotnar.

Hverjir mega nota Melt?

Melt er eingöngu fyrir einstaklinga sem hafa náð 18 ára aldri. Staðfesting með Kenni er nauðsynleg til að stofna virkan aðgang.

Hvernig skrái ég mig inn?

Í 1.0 er hægt að nota netfang og lykilorð eða Google. Apple-innskráning verður einnig í boði á iPhone. Facebook-login er ekki notað. Eftir innskráningu fer nýr notandi í öruggt Kenni-staðfestingarflæði.

Sjá aðrir fullt nafn eða kennitölu mína?

Nei. Á prófílnum birtist fornafn og aldur. Auðkennisupplýsingar eru aðeins notaðar til staðfestingar, öryggis og til að uppfylla lagaskyldur.

Sést nákvæm staðsetning mín?

Nei. Aðrir sjá námundaða fjarlægð, ekki heimilisfang, nákvæm hnit eða kort. Melt notar ekki handvirka staðsetningu og fylgist ekki með staðsetningu í bakgrunni.

Hvað fæ ég mörg læk ókeypis?

Ókeypis aðgangur inniheldur allt að 30 læk á dag. Spjall við match er ókeypis og ótakmarkað.

Hvenær verður match?

Match myndast þegar tveir notendur hafa lækað hvorn annan. Þá opnast spjallið og báðir fá skilaboðin „Ísinn er brotinn!“

Get ég falið leskvittanir?

Leskvittanir eru sjálfgefið virkar. Með Melt+ má fela þær, en stillingin er gagnkvæm: ef þú felur þínar sérð þú heldur ekki leskvittanir hins aðilans.

Hvað gerir ósýnilegur hamur?

Með ósýnilegum ham í Melt+ sér aðeins fólk sem þú hefur sjálf/ur lækað prófílinn þinn í uppgötvun. Núverandi match geta áfram átt samskipti við þig.

Hvernig virkar Boost?

Boost eykur sýnileika prófílsins í 60 mínútur. Eitt fylgir Melt+ á mánuði og allt að þrjú ónotuð mánaðarleg Boost geta safnast upp. Einnig má kaupa 1, 5 eða 10 Boost. Boost er ekki merkt öðrum notendum.

Get ég falið aldur eða fjarlægð með Melt+?

Nei. Aldur og námunduð fjarlægð eru alltaf sýnileg og ekki er hægt að velja handvirka staðsetningu.

Hvernig loka ég á eða tilkynni notanda?

Valkostirnir „Loka“, „Tilkynna“ og „Slíta matchi“ eru aðgengilegir á prófíl og í spjalli. Tilkynntur notandi sér ekki hver sendi tilkynninguna.

Hvernig segi ég upp Melt+?

Áskrift er stjórnað í þeirri verslun sem hún var keypt í. Segðu upp í áskriftarstillingum Apple App Store eða Google Play. Að eyða appinu eitt og sér stöðvar ekki áskrift.

Hvernig eyði ég aðganginum mínum?

Þú getur valið „Eyða aðgangi“ í stillingum appsins eða sent beiðni samkvæmt leiðbeiningunum á síðunni Eyða aðgangi. Uppsögn áskriftar og eyðing aðgangs eru tvær aðskildar aðgerðir.