Persónuverndarstefna
Melt vinnur með persónuupplýsingar til að veita örugga stefnumótaþjónustu. Hér er útskýrt hvaða gögn eru notuð, hvers vegna, hverjir fá aðgang og hvaða réttindi þú hefur.
Síðast uppfært: 21. september 20261. Ábyrgðaraðili
MeltApp.is er ábyrgðaraðili vinnslunnar. Almennar fyrirspurnir um persónuvernd má senda á personuvernd@meltapp.is. Rekstrarupplýsingar og heimilisfang eru birt neðst á þessari síðu.
2. Upplýsingar sem við vinnum
- Aðgangsupplýsingar: netfang, Firebase-notandaauðkenni og tæknilegar staðfestingar frá netfangs-, Google- eða Apple-innskráningu
- Kenni-staðfesting: staðfest fornafn, fæðingardagur og dulritað HMAC-auðkenni sem er leitt af kennitölu til að sannreyna 18 ára aldur og hindra tvöfalda aðganga; kennitalan er hvorki send í appið né geymd læsileg hjá Melt
- Valfrjáls selfie-staðfesting: einkageymd mynd og yfirferðarstaða; myndin birtist ekki öðrum notendum
- Prófíll: fornafn, aldur, myndir, æviágrip, kyn, hverjum þú vilt kynnast, stefnumótaásetningur, svör, áhugamál, tungumál, svæði og valfrjálsar lífsstílsupplýsingar
- Staðsetning: staðsetning í forgrunni; nákvæmum hnitum er fargað eftir að þau hafa verið námunduð í tvo aukastafi til að reikna fjarlægð
- Notkun: læk, sleppingar, match, síur, Boost, sýnileikastillingar og samskipti við eiginleika appsins
- Samskipti: textaskilaboð í Firestore, innsláttar-, afhendingar- og lesstaða, tilkynningar um notendur og samskipti við þjónustuver
- Tækni- og öryggisgögn: IP-tala, tæki, stýrikerfi, appútgáfa, FCM push-auðkenni, atvikaskrár og gögn til að greina svik eða misnotkun
- Greiðslur: áskriftarstaða og viðskiptaauðkenni frá Apple eða Google; Melt fær almennt ekki fullt greiðslukortanúmer
3. Viðkvæmar upplýsingar
Kynhneigð og upplýsingar sem kunna að gefa hana til kynna geta talist viðkvæmar persónuupplýsingar. Vinnsla slíkra valfrjálsra upplýsinga byggist á afdráttarlausu samþykki þínu. Þú getur breytt eða fjarlægt þeim og dregið samþykki til baka, en það kann að takmarka möguleika Melt til að sýna viðeigandi prófíla.
4. Tilgangur og lagagrundvöllur
- Samningur: stofna og reka aðgang, sýna prófíla, reikna fjarlægð, mynda match, afhenda skilaboð og veita Melt+
- Samþykki: vinna með viðkvæmar valfrjálsar upplýsingar, staðsetningarheimild tækis, tilkynningar og valfrjálsa markaðspósta
- Lögmætir hagsmunir: tryggja öryggi, fyrirbyggja svik, bæta virkni, veita þjónustu og verja réttarkröfur að teknu tilliti til réttinda notenda
- Lagaskylda: bókhald, viðbrögð við lögmætum beiðnum yfirvalda og önnur lögbundin varðveisla
5. Hvernig uppgötvun og match virka
Melt raðar og síar prófíla út frá stillingum notenda, aldri, raunverulegri námundaðri fjarlægð, tungumáli, áhugamálum og virkni. Boost getur tímabundið aukið sýnileika. Þessi vinnsla hjálpar við að velja hvaða prófílar birtast en felur ekki í sér ákvörðun sem hefur réttaráhrif eða sambærileg veruleg áhrif á þig.
6. Hverjir sjá eða fá gögn
Aðrir notendur sjá sýnilegar prófílupplýsingar, þar á meðal fornafn, aldur og námundaða fjarlægð. Match sjá textaskilaboð sín á milli. Stjórnendur geta ekki flett almennum spjallsögum; við öryggistilkynningu getur aðeins afrit af sérstaklega tilkynntum skilaboðum fylgt málinu. Nauðsynlegir vinnsluaðilar eru meðal annars Google Firebase fyrir innskráningu, Firestore-spjall, myndageymslu og push-tilkynningar, Kenni fyrir auðkennisstaðfestingu og Apple eða Google fyrir kaupastaðfestingu. Við getum miðlað gögnum þegar lög krefjast þess, til að bregðast við bráðri hættu eða til að verja lögmæta hagsmuni og réttarkröfur. Við seljum ekki persónuupplýsingar.
7. Flutningur milli landa
Sumir tæknibirgjar kunna að vinna gögn utan Íslands eða Evrópska efnahagssvæðisins. Þá notum við viðurkenndar verndarráðstafanir, svo sem ákvörðun um fullnægjandi vernd eða staðlaða samningsskilmála, eftir því sem við á.
8. Varðveisla
- Aðgangs- og prófílgögn eru varðveitt meðan aðgangur er virkur
- Við staðfesta aðgangseyðingu er prófíll falinn, persónugreinanlegir prófílreitir tæmdir, myndum eytt og Firebase Authentication notanda eytt eða eyðing hans sett í endurtekna vinnslu
- Aðgangur að spjalli lokast þegar matchi er slitið, notandi er lokaður eða aðgangi eytt; Firestore-spjallþræði er eytt 90 dögum síðar
- Selfie-staðfestingarmyndum er eytt eigi síðar en 30 dögum eftir yfirferð eða móttöku ef þær eru enn óafgreiddar
- HMAC-auðkenni leitt af kennitölu getur varðveist í allt að 24 mánuði eftir aðgangseyðingu til að hindra misnotkun og tvöfalda aðganga; það er síðan fjarlægt
- Tilkynningar, svikavarnir og sönnunargögn geta varðveist lengur þegar nauðsynlegt er vegna öryggis, lagaskyldu eða réttarkrafna
- Fjárhags- og viðskiptagögn eru varðveitt eins lengi og bókhalds- og skattalög krefjast
9. Öryggi
Við beitum tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum sem miða að því að vernda gögn, þar á meðal aðgangsstýringu, dulkóðuðum flutningi og takmörkuðum starfsmannaaðgangi eftir þörf. Ekkert kerfi er fullkomlega öruggt; láttu okkur vita tafarlaust ef þú telur að aðgangur þinn eða gögn hafi verið misnotuð.
10. Réttindi þín
Við gætum þurft að staðfesta auðkenni áður en beiðni er afgreidd. Sendu beiðni á personuvernd@meltapp.is.
- Að fá upplýsingar og aðgang að persónuupplýsingum
- Að fá rangar eða ófullkomnar upplýsingar leiðréttar
- Að óska eftir eyðingu eða takmörkun vinnslu
- Að andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum eða beinni markaðssetningu
- Að fá eigin gögn á algengu, tölvulesanlegu sniði þegar skilyrði gagnaflutningsréttar eru uppfyllt
- Að draga samþykki til baka án þess að það hafi áhrif á fyrri lögmæta vinnslu
- Að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd á personuvernd.is
11. Börn
Melt er ekki ætlað einstaklingum undir 18 ára aldri. Ef okkur berast áreiðanlegar upplýsingar um að barn hafi stofnað aðgang lokum við honum og eyðum gögnum eftir því sem lög og öryggi heimila.
12. Vefurinn MeltApp.is
Kynningarvefurinn notar ekki auglýsinga- eða greiningarkökur. Vefþjónn getur unnið tímabundið með IP-tölu, vafragerð, beiðnitíma og slóð vegna afhendingar, öryggis og bilanagreiningar. Font Awesome er sótt frá CDN og sá þjónustuaðili getur því fengið hefðbundin tæknigögn beiðninnar.
13. Breytingar og samband
Ef stefnan breytist verulega látum við vita í appinu eða með öðrum viðeigandi hætti áður en breyting tekur gildi. Spurningar og beiðnir má senda á personuvernd@meltapp.is.
MeltApp.is · Reykjavík, Ísland